Gott að vera sjálfselskur
Held að kötturinn minn haldi að hann sé hundur! hhmmm eltir mig utum allt og spjallar!
Ampop tónleikar á nasa á morgun!!! Alveg brilliant band sem má ekki láta fram hjá sér fara!
Miðvikudagurinn 23. nóv. Hljómsveitirnar AMPOP og WORM IS GREEN Halda útgáfutónleika
Húsið opnar kl.21 - Miðaverð kr. 700 Snilldar skemmtun :)
Svo er það flug norður á fimmt-morgun og fyrirlestur um hádegið.. heljarinnar skemmtun.. Vonir standa til um að gubba ekki á pultið... held reyndar að þetta verði í þetta sinn bara mjög fínt. Hlakka til að komat út úr Reykjavík.. þó það sé ekki nema í einn dag. Hefði viljað vera helgina fyrir norðan en hef í staðin sett það á langar að gera listann.
Virkilega farin að þrá að komast í einhvern tima í burtu.. jafnvel farin að láta mig dreyma að fara í ferðalag til framandi landa ein. Sé það fyrir mér í hyllingum eins og er.. en veit ekki hversu lengi eg myndi endast ein.. er nægilega skrýtin þegar eg er ein í viku ferðalagi.. hvað þá mánuð eða mánuði! Enda um óraunhæfan draum að ræða... en draum samt sem áður. Mér finnst eg ekki vera neitt vond með þvi að eiga þennan draum. sjálfselsk já! en það er líka gott.. sámmála?

0 Comments:
Post a Comment
<< Home